flutt!! ingarut.bloggar.is

ingarut.bloggar.is!! get ekki sett inn færslur á þessa! hún er ónýt! kíkið á hina!!!

19.11.2007 14:56:51 / inga

farin

ég er flutt yfir á

 

 ingarut.bloggar.is


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.09.2007 15:09:03 / inga

REGLUR OG ÓREGLUR

  Minn ágæti vina og vinkvennahópur er á alveg ágætu stigi af biturleika þessa dagana, þar sem hópurinn “minn” single-arnir er alltaf að stækka þá óhjákvæmilega höfum við meira að tala um, og þó sérstaklega stelpurnar um strákana, reyndar er nú einn og einn strákur sem hefur bitra sögu að segja, og hlustum við stelpurnar vel og vandlega, eftir leindardómum karlpeningsins.. Ég ætla ekki að nefna nein nöfn í þessu samhengi, en mig langar til þess að minnast á nokkur atriði, sem stundum getur valdið misskilningi hjá karlmönnum, stundum þýðir nei bara nei og já bara já!! þar sem karlmenn eru að gera okkur stelpurnar brjálaðar.. (af og til) en eins og er alkunn regla þá getum við ekki lifað með þeim og engan vegin án þeirra.. en hér eru nokkur dæmi (og þó ég tali þarna um mig í 1. persónu þá á það engan vegin við í öllum atriðunum.. )

- þegar það er hringt í mig klukkan fjögur um nótt og beðið um að fá að koma í heimsókn, og ég neitar, segist vera að fara að vinna snemma – þá þýðir það ekki að þú eigir að taka leigubíl fyrir 7000 kr. banka heima hjá mér á alla glugga, hringja tólf sinnum og láta mig fá samviskubit yfir því að þú hafir ekki far heim, leyfa þér að sofa á sófanum og halda mér vakandi fram að vinnu!

- þegar þú gleymir að minnast á það að þú sért giftur, að þú eigir konu í öðru landi, og ert búinn að ljúga uppí opið geðið á mér í hálft ár – þá þýðir það ekki að ég ætli að halda áfram að hitta þig!

 

-  ekki segjast elska mig út af lífinu og þú meinar það ekki!!

 

-  þegar sefur hjá mér, heldur mér heitri, vekur mig um miðja nótt, lætur mig ná í þig á djammið og ég kemst að því að þú sért að sofa hjá annari á meðan – ekki búast við því að ég komi hlaupandi til þín (þú færð sko að skríða)!

- við búum saman, ég má ekki drekka en þú ferð á djammið og kemur ekki heim um nóttina og lætur ekki vita – ekki búast við því að ég sé heima þegar þú loksins skilar þér

-  þið hættið saman, þú byrjar að hitta annan of snemma -- ?? hvað er of snemma, og hvenær verður það of seint, á hvaða tímapunkti er það sem maður má hitta annað fólk? Og eru einhverjar reglur? Grípur ekki bara ástin þegar hún grípur mann, eða er maður að reyna að komast yfir hinn aðilann með því að snúa sér að öðru?

-  þegar þú hittir strák, þá hafa allir sýna skoðun á því hvenær maður má og hvenær maður á, hvenær maður á ekki að senda sms eða hringja, hvað á maður að bíða lengi eftir sms áður en maður snýr sér annað, eða á maður að minna á sig af og til, eða er hann ekki þess virði ef hann man ekki eftir þér alla daga..??

 Þetta er allt svo óendanlega flókið, hvenær veit maður hvað maður á að gera  - - hvað er rétt að gera og hvað er rangt að gera, ef ég sendi honum af fyrra bragði tvo daga í röð, lýt ég þá út fyrir að vera örvæntingafull? Ef ég sendi ekkert í tvo daga þá lýt ég þá út fyrir að hafa ekki áhuga? Ef hann sendir tvo daga í röð að fyrra bragði en ekkert þriðja daginn, er þa´komið að mér? Á ég þá að senda?? Eða á ég að bíða og athuga hvort hann sendi fjórða daginn til þess að sjá hvort hann hafi áhuga?

Ef strákur fær númerið þitt og sendir þér á þriðjudeginum (sem er reglan í öllum bíómyndum) er hann þá bara maður sem hefur allar reglur á hreinu, eða sá sem þurfti smá tíma til að hugsa sig um áður en hann hefði samband,
Og ef annar sendir þér strax og hann vaknar á sunnudeginum, hefur hann þá meiri áhuga? Eða bara ekki með allar reglur á hreinu??
Eða er það kannski nógu mikill sýndur áhugi ef hann sendir þér sms in the first place.. ??
 

Ég alla vega, þótt ég sé búin að vera á þessum markaði í þó nokkurn tíma, hef ekki allar þessar reglur á hreinu, og það er kannski þess vegna sem ég er ennþá single ;) hehe.. en á maður að fara eftir þessum reglum eða bara fylgja hjartanu og karakternum í hvert og hvert skipti? Eða á maður að fara að örvænta og brenna öll eintök af bókinni;

 

HE’S JUST NOT THAT INTO YOU!!!

 

 

Bara til þess að hætta alla vega að hugsa um allar þessar reglur og óreglur sem maður þarf þessa dagana að hugsa meira um að sjálfan sig, ef maður ætlar einhverntíman að ganga út! 

 Þið sem eruð í sambandi, haldið ykkur fast!! Að því að markaðurinn er ekkert grín um þessar mundir ;) 

Annars er þetta nóg af örvæntingarfullu tuði í aunablikinu - -

 

 ég ætla að fara að pakka að því ég er að flytja eftir 2 daga!!!!

 

 

Inga Rut

» 29 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 14:46:40 / inga

tárum blandinn ben & jerry's endalok og nýtt upphaf..

horfi fram a´við á ný og spennandi verkefni -

flutningar í næstu viku, mikið stress, á eftir að gera svo mikið, mála, pakka, redda flutningarmönnum ;) sækja um húsaleigubætur,þinglýsa samningnum, og redda leikskólanum, skila af mér bókinni frá foreldrafélaginu sem ég týndi í síðustu flutningum og er þess vegna ekki búin að skrifa neitt í, en hún er fundin og þarf að skrifa núna áður en ég skila henni af allt starfið í vetur.. og fleira og fleira..

mamma go pabbi eru farin til Spánar þannig að ég og Júnsa erum bara tvær heima, að því að yngsi unginn er floginn í MA býr á vistinni, þannig að ég kem ekki í miklu í verk á kvöldin, svo er ég að vinna mikið, til að geta borgað leiguna sem er tvöföld 1. mánuðinn eða 150 þús.

Kristjana frænka var að bjóða mér til Spánar núna 1. okt. hún er þar núna, þar sem ég var í fyrra og fékk 6 bónorð - - hehe, og það voru svo margir að spurja um mig þar.. laaaangar svo að fara, en það er ekki hægt að vera alls staðar og gera allt..

veit nú eiginlega ekkert hvað ég a´að blogga um, var bara beðin um það.. held að fólk sé að verða þreytt á myndinni þarna hehe..

annars var svolítið að taka enda í dag sem ég ætla ekkert að ræða hér, en það er bara eins og það er allt gott tekur enda um síðir.. og sá tími var bara kominn.. ben & jerry hjálpa mér í gegnum það í dag.. annars er ég alveg ágæt, var búin að undirbúa mig undir það..

en í staðin er ég að sigla inn í önnur ævintýri hehe, eða þannig, flutningar fram undan og nóg að gera, hlakka bara til þegar ég er flutt og það fer aðeins að róast.. langar svo að fara að hitta eitthvað af fólkinu mínu..

annars fór ég á djammið, alveg óvart um helgina, það komu 40 manns í heimsókn frá ólafsvík og við fórum með þau í bruggið sem að endaði svo með því að ég fór með mömmu og pabba, öggu og óla og nýja bruggaranum og frú á vélsmiðjuna, læddist svo yfir á kaffi Ak. og amour, og hitti fullt af nýju og "gömlu" skemmtilegu fólki.. svo var það svo fyndið, stóð fyrir utan kaffi akureyri að tala við einhverja þrjá "rosa sæta" stráka þegar mamma og pabbi löbbuðu til mín og létu mig vita að afi og amma væru komin að ná í mig.. hahahaha cool stuðullinn minn lækkaði svo að ég bauð strákunum að stíga ofan á hann.. annars var mjög gaman kom heim um þrjú og vaknaði svo með júnsu klukkan sjö.. :)

annars er búinn að vera hasar hérna í dag út af Kalda brasinu á bylgjunni í morgun.. með 2.25% vesenið og kallinn sem pantaði 60 kassa af Kalda 2.25% í beinni dag til að sanna það að hann væri ekki til, hefur alveg örugglega ekki áttað sig á því helvítis kallinn að það eru yfir 1440 flöskur og kostar 430 þús.. haha gott á hann þegar hann fær reikninginn..

annars hef ég bara ekkert að segja og ég er bara eitthvað að tuða þannig að ég hætti því bara..


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 23:22:58 / inga

segið svo að það sé ekkert að gera á árskógssandi!!

í kvöld fórum ég og Sindri frændi niðrá loft í myndatöku, máluðum okkur, sötruðum nokkra bjóra og tókum fullt af myndum, alveg geðveikt gaman!!

hérna er ein sem er tilbúin, bara til að sýna ykkur forsmekkinn af því ;) hehe


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 20:16:00 / inga

tilkynning!!

jæja núna er ég með fréttir!!

ég og Júnía erum að flytja í bæinn, búnar að fá íbúð, þriggja hergbergja, 70 fm2 á jarðhæð í blokk í keilusíðunni.. alveg endalaus gleði í gangi, við flytjum um næstu mánaðarmót :D :D :D vonum bara að það gangi allt upp með leikskólann og allt það..

jæja nóg að gera.. blogga kannski meira á morgun, nenni því ekki núna, langaði bara að leyfa ykkur að vita, þar sem færstir vissu um að ég væri að pæla í þessu, en þetta gekk svona glimrandi vel.. :D :D


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 17:40:44 / inga

Life is not measured by the number of breaths we take, but by the moments that take our breath away.

var búin að blogga helling áðan, en svo eins og alltaf fraus helvítis talvan og allt datt út, og þetta var svo happy happy joy joy færsla, en svona er þetta, langaði bara að þakka öllum fyrir yndislega helgi, bæði öllum þeim sem mættu í afmælið mitt á föstudeginum og á sýninguna á laugardeginum, þetta var bæði alveg frábært, æðislegt og yndislegt, og langar mig bara virkilega mikið að þakka öllum sem gerðu þessa helgi sem hún var..

en nenni ekki að skrifa allt sdem ég skrifaði áðan aftur, þannig að ég skelli bara inn myndum úr afmælinu vegna mikils og aukinn þrystings ;) og vona að þið njótið vel

svona var þetta geðveikt gaman!! vona að allir skemmtu sér jafn vel og ég :D :D :D :D

- takk fyrir mig -


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 19:57:12 / inga

smá pæling..

vinur minn sagði mér um daginn eftir umræðu um lífið, dauðann og líf eftir dauðann að hann hefði heyrt að tvær sálir væru saman í hverju lífi, að við héldum alltaf áfram og kynntumst alltaf einni sömu manneskjuni aftur og aftur..

sem sagt sálufélagar - -

 hvernig veit maður hver hann er? getur maður einhverntíman verið viss? eða þarf maður að leita alla tíð og sjá það svo eftir á þegar ævin er á enda, að þetta var sálufélaginn, en maður áttaði sig bara aldrei á því?

ætli sálufélaginn sé, einhver sem maður hefur þekkt frá fæðingu, sem fylgir manni alla tíð, eða ætli það sé einhver sem allt í einu birtist og umturnar öllu í lífinu þínu? og þú getur ekki hugsað þér að vera án? er það vinur, vinkona, foreldrar, börn, frændfólk gæludýr eða kærastar? er það einhver sem á eftir að fylgja þér í veikindum og ellinni þar til dauðinn aðskilur ykkur, er það bara einhver sem birtist í smá stund og þú sérð aldrei aftur?

já ég er búin að vera að velta mér uppúr þessu síðustu daga..

hvenær veit maður??

hvað er rétt, og hvað er röng ákvörðun? og veit maður einhverntíman hvort hún hafi verið rétt eða röng? ætli ég sé búin að kynnast honum en veit ekki af því? eða á ég eftir að kynnast honum? eða fæ ég bara aldrei að vita það??

jæja nóg af þessu í bili..

----------------------

langar að þakka öllum sem mundu eftir afmælinu mínu, takk fyrir öll smsin, símhringarnar, knúsin og kossana, og sérstaklega að öllum öðrum ólöstuðum Ölfu, Hönnu og svo áhöfninni á Eydísi sem hringdu og sungu fyrir mig :D og að sjálfsögðu Kötu minni sem kom til mín í mat og meððí.. rosa gaman :D

 fyrst það mundu svo margir eftir mínu afmæli þá ætla ég að óska þeim sem eiga afmæli í sömu viku og ég innilega til hamingju.. það eru;
17. Stefán
18. ég, Konni og Gugga, (Reykjavík, Ólafsvík og Akureyri)
19. Guðrún, Georg, Eygló og Kristján
20. Sindri Svan
22. Siggi Bragi
23. Eyrún
25. Magga..

vona að ég sé ekki að gleyma neinum - - en það er ekekrt smá greddan sem færist yfir fólk í öllu jólastressinu - já við erum öll jólastress börn sem eigum afmæli í lok ágúst, sorglegt en satt!

annars er ég að farast úr stressi, og það er kannski þess vegna sem ég er að gera þessa löngu bloggfærslu, að því að ég á að vera að gera eitthvað allt annað, er búin að vera að mála fyrir sýninguna, og það gengur allt á afturfótunum í dag, var búin að vinna í einni mynd í 20 tíma, þegar ég fékk snilldar hugmynd í gær, og grunna yfir hana og hafa hana þokukennda, en það gekk ekki betur en svo að hún skemmdist bara þannig að ég þurfti að hætta fyrr í vinnuni í dag til að fara að mála að því að ég þarf að skila þeim á morgun.. og er búin að liggja yfir henni núan í ca.7 tíma, þegar ég fór að gefa gríslingunum mínum, Júnsu og Þóri að borða og missti þá mjólkur könnu yfir myndina! er svona bara aðeins að trappa mig niður og á svo eftir að taka damage report á eftir.. vona að þetta reddist, á greinilega ekkert að fara með þessa mynd á sýninguna.. en ég ætla samt að reyna það - - allt og mikil vinna til einskis, annars er frí í leikskólanum á morgun, sem kemur sér mjög vel, að því þá þarf ég að vera í fríi í vinnuni, og get þa´klárað, og farið með myndirnar og reddað öllu fyrir afmælið á föstudagskvöldið, þá er þetta bara allt að skríða saman..

er ekkert smá ánægð með gellurnar mínar sem eru þvílíkt búnar að vera að pæla í og græja ofurhetjubúninga.. efast samt um að strákarnir láti sjá sig í búning.. hvað er þetta með stráka og búninga? jahhh.. það er allt annar handleggur og ég hef engann tíma til að fara út í þá umræðu núna.. en alla vega.. efast um að einhver hafi nennt að lesa þetta..

jæja best að fara að gera damage report og halda áfram.. wish me luck..


» 11 hafa sagt sína skoðun

17.08.2007 19:11:57 / inga

jahhh..

nú fer að sigla á seinni hlutann á æsku minni :D hahahha..

sé nú fram á mjög rólega en góða helgi.. sjóstangveiðimót í fullum gangi, búin að fara á bryggjuna til að fá smá fíling, skrítið að vera á þeim enda á svona móti.. en svona er þetta, fór í vinnuna í morgun, og fór næstum því með tárin heim.. eða ekki alveg en næstum því samt þar sem Sigurlaug og allir hinir eru að hætta og fara í skóla, sem ég væri að fara að gera núna ef ég hefði nú bara sótt um eins og ég ætlaði að gera.. en svona er þetta nú samt..

í næstu vikur verð ég sem sagt með eftirlegu kindunum, gamla fólkinu og útlendingunum.. ohh hvað þetta verður langur vetur...

en á morgun verður sem sagt bæjarferð, bryggjurúntur og svo kemur Kata í mat, kannski Elva, ætla að elda handa þeim humar í rjómasósu og fylltar kjúklingabringur og meððí.. og svo ætlar Sigurlaug örugglega að kíkka, í smá hvítvín og bjór, hver veit nema við náum loksins að kveikja uppí arninum, fæ bara kennslustund hjá pabba á eftir, þar sem það gekk eitthvað lítið hjá mér og Kötu síðast eftir ítrekaðar tilraunir..

næsta helgi verður verður svo rosa góð.. vona ég.. verð með party (staðsetning verður ekki sögð hér, þar sem ég veit ekkert hverjir lesa þetta hehe) það verður ofurhetju þema.. ú jee.. ég verð NATURE CHICK my mission is saving Iceland.. hehe tók smá make up æfingu um daginn..

 

svo á laugardeginum er menningarnóttin, eða Akureyrarvaka (sælla minninga)  hahaha.. og þá verður sýningin, og endilega koma sem flestir, hún er í húsinu, og ég er búin að vera að mála eins og brjálæðingur og á ennþa´nóg eftir.. gaman að því bara.. annars eru þetta bara góðir dagar, og góðir dagar framundan..

annars vona ég bara að þið njótið lífsins og restinni af sumrinu sem er alveg að verða búið!

tata


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 20:59:49 / inga

jæja

ætli það sé ekki best að fara yfirtaka þetta þunglyndisblogg sem er hérna á undan.. enda engin ástæði til að hafa það, þar sem sumarið var ekki nærri því búið og allir vinirnir eru hérna ennþá og komast flestir í afmælið mitt :D

svo eru þau aldrei svo langt í burtu að ég komist ekki í heimsókn til þeirra :D

annars er fiskidagurinn kominn og farinn.. og þvílíkt og annað eins 40.000 manns mættir og ég skemmti mér konunglega, ég og Júnsa fórum á súpurölt með Kötu, Jóhann, Ólöfu Helgu, Þóri og Birni Þóri, sem var algjör snill, svo passaði Þórir bró fyrir mig og ég fór með þeim í áframhaldandi rölt og dans, fórum í party til Unnar og Rúnna Júl.. ú jeeee ;) haha

svo var dansað og spjallað á bakaríinu fram á rauða! ég og Júnsa vorum svo mættar á bryggjuna á Dalvík klukkan tólf, og ég var svooo svöng en nennti ekki að bíða í röð eftir fiskiborgara þar sem það voru hátt í 500 manns í röð, þannig að við rölltum til Kötu (sem var ekkert þunn HAHA) í Olís og fengum okkur pylsu, og röltum svo aftur til baka, og þá var ennþá sumt af fólkinu ennþá í sömu röðinni! það sem ég sá ekki eftir því rölti! úffff...

annars er sumarfríið mitt búið frá og með þessum degi og hversdagsleikinn tekur við á morgun! samt nóg um að vera framundanm sjóstangveiðimótið um næstu helgi, sem ég reyndar í fyrsta skipti í 7 ár  (fyrir utan árið sem ég var ólétt) tek ekki þátt í að því ég hef ekki pössun :( en svona er þetta það kemur ár eftir þetta ár..

en talandi um ár!! þá á ég afmæli á laugardaginn, bætist annað ár í sampinn! ellin færist yfir á ógnarhraða, og maður bara hefur varla tölu á þeim öllum, en að sökum pössunarleysis held ég ekki uppá það þessa helgi.. en ætla hins vegar að halda uppá það með pompi og prakt helgina eftir! vúhúú!! hef ekki haldið uppá afmælið mit síðan ég var 18. og teljiði nú!

annars liggur bara lífið nokkuð létt á mér þessa dagana, er að reyna að vera geðveikt dugleg og hreyfa mig aðeins, aðeins að létta á mér fyrir stóra daginn! búin að hjóla eins og brjálæðingur í dag og fór og tók á honum s´tóra mínum og boxaði helling í dag! sem mér fannst reyndar geðveikt! þvílík útrás! fór meira að segja að lyfta og alles.. maður verður að gella sig upp áður en maður fer í síló ;)

annars vona ég að þið hafið það öll gott bara..


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 10:25:49 / inga

með trega í hjarta..

kveð ég sumarævintýrið, sumarið, versló og vini og félaga sem fara á braut þegar sumar fer.. nú fer allt að tæmast aftur, allir vinirnir sem komu og glöddu mitt litla hjarta, fara nú að týnast í burtu einn af öðrum á vit nýrra ævintýra, og eftir sit ég hér í sömu sporunum..

 

----------------------------------


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 16:40:13 / inga

sumarfríið mitt..

núna er ég í tveggja vikna sumarfríi með Júnsu minni, sem er alveg æðislegt! fyrir utan það að allir aðrir eru að vinna.. hehe.. annars þá nenne ég ekki að blogga að því það nennir aldrei neinn að commenta, þannig að ég ætla bara að henda inn myndum af litlu músunum mínum sem eru búin að leika sér með mér í sumarfríinu mínu..

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 16:49:13 / inga

EEEEEELSKETTA LAG!

Incompatible, it don't matter though
'cos someone's bound to hear my cry
Speak out if you do
you're not easy to find

Is it possible Mr. Loveable
is already in my life?
right in front of me
or maybe you're in disguise

Who doesn't long for someone to hold
who knows how to love you without being told
somebody tell me why I'm on my own
if there's a soulmate for everyone

Here we are again, circles never end
how do I find the perfect fit
there's enough for everyone
but I'm still waiting in line

Who doesn't long for someone to hold
who knows how to love you without being told
somebody tell me why I'm on my own
if there's a soulmate for everyone

If there's a soulmate for everyone

Most relationships seem so transitory
They're all good but not the permanent one

Who doesn't long for someone to hold
who knows how to love you without being told
somebody tell me why I'm on my own
if there's a soulmate for everyone

Hún er sko geðveikt uppáhalds þessa dagana!

en annars þá átti ég mjög góða helgi um helgina, bara rólegheita helgi í bænum með Heiðu frænku frá grindavík, gistum hjá Gunna mínum og vorum rosalega góðar við okkur´..

sátum í sólinni og sötruðum bjór á amour, út að borða, í ljós og kaffihúsa rölt á kvöldin, leið bara eins og ég væri í útlöndum, dönsuðum mikið á laugardagskvöldinu á kaffi Akureyri, og ojj hvað það var heitt.. það var bara pollur í loftinu og dropaði niður svitinn úr loftinu! ojj ojjojj.. eftir dansinn var rölt á Hlölla og svo settumst við nokkur í brekkuna á bor'uðum í rólegheitunum, alveg frábært bara..

á mánudaginn fórum ég og kata í bæinn, komum Elvu á óvart og tókum hana með okkur á kaffihús, svo kom Hanna með flugi og skellti sér til okkar, tókum svo nokkra hringi og það var svooooo gaman! umræðurnar! össss, hláturinn, gretturnar og söngurinn á leiðinni heim, þetta var alveg æðislegt! af hverju ?? BARA!!! hahahahhahaha

svo er Júnsa mín að koma til mín á laugardaginn! get ekki beðið, talaði við hana í gær og sagði henni að bráðum kæmi hún heim til mömmu, þá sagði hún; já þá verður þú svoooo glöð! hehe æji dúllan! sakna hennar svooo..

en hún kemur bráðum til mín ;) veiii..

annars er bara allt ljómandi að frétta! alveg allt of gott bara í augnablikinu, ég og Þórir bró erum bara ein heima fram á laugardag, og já ég er ennþa´bíllaus!! er ekki að grínast! þurftu að kaupa auka stykki og setja það í og blablabla.. gátu ekki pantað það strax út af því það þurfti að halda fund hver ætti að borga það ég eða þeir.. að því að það kostar bara 400.000.- jeminn!! en sem betur fer ætla þeir að borga það! fjúkk ETT! og ég fæ hann eftir helgi! veiii..

annars eru bara rólegheit um helgina.. fæ að hitta LOKSINS LOKSINS, Chris hennar Kötu, bíð mjög spennt eftir frumsýningunni, svo er svo mikið að gerast hjá öllum í kringum mig, spennó spennó spennó! svo á´bráðum afmæli og ætla að halda upp á það föstudaginn 24 ágúst.. og það verður þema party!! váá eru þið ekki hissa? að ég ætli að halda þema party? heheh

en annars ætli ég láti þetta ekki nægja..

komin með nýtt lúkk.. er eitthvað rosa bubbly, bleik, jolly happy summary þessa dagana, þannig að ég er komin með nýtt lúkk á þessa, beboið og myspacið! dugnaðurinnn þegar maður er heima bíllaus og hefur eeeeeeeekkert að gera! ;)

bæjó

annars já þá fó rég í klippingu og litun um daginn og er að vinna að því að verða ljóshærð hæææægt og rólega, tökum þetta bara strípu fyrir strípu annars var ég að pæla í bleiku lúkki á mér líka, læt eina solleis fljóta með, vild ég væri með svona hár!

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 22:51:32 / inga

æji takk Kata!

hehe já Kata klukkaði mig! whoopdydoo!! en hvað gerir maður nú ekki fyrir Kötu sína, ekki það að ég skilji alveg út á hvað þetta gengur.. en held ég eigi að segja frá 8 hlutum um sjálfa mig..

1. ég er fyrst og fremst mamma! og elska það meira en allt annað, og elska Júníu mína mest í heiminum.. hún er núna hjá pabba sínum í tvær vikur og líður eins og ég sé handa og fótalaus!! hún er yndislegust í heiminum og ég sakna hennar svoooooo!!!

2. ég er myndasjúk þessa dagana, bæði að mála og taka myndir.. lifi fyrir það að koma einhverju á blað sem lifir að "eilífu"

3. ég ´tok líf mitt í gegn um daginn eftir smá hræðslukast sem ég fékk eftir margar blóðprufur og læti... þá hélt maður það versta en vonaði það besta og endurskoðaði allt - - hugsaði til þeirra tækifæra sem ég hef misst af vegna hræðslu og feimni, og hugsaði til þess sem ég mundi missa af, ef niðurstöðurnar væru slæmar. hef tekið þá ákvörðun að gera það sem mig langar til að gera ef ég hef tækifæri til án þess að hugsa til baka..

4. ég á yndislegustu vini í heiminum!!

5. mig langar að gera eitthvað úr lífinu, mig langar að kaupa mér íbúð, fara í skóla, verða besta mamma í heimi og (fá mér sílíkon) ;)

6. ég tek ekki alltaf réttar ákvarðanir - - en hef komist að þeirri niðurstöðu, hvort sem það sé bara í hausnum á mér eða ekki, þá geta rangar ákvarðanir líka verið réttar....

7. ég er svo yfir mig ástfangin! af allt of mörgum!

8. ég elska líf mitt í augnablikinu - -

----------------------------------------------------------

en annars þá fékk ég út úr blóðprufunum mínum um daginn og þau gátu bara ekki fundið neitt að mér :D bara healthy as a horse!

ég er búin að vera svo glöð undanfarna daga og vikur, búin að vera svo dugleg að hitta vini mína sem dæmi; fór út í grímsey til Hönnu línu, heimsókn til Jóku, kaffihús með sigurlaugu, kaffihús með Kötu, út að borða með Elvu og Kötu, kaffihús með Ölfu og kaffihús með Gunnari elska svo að hitta alla yndislegu vini mína, Dandi og Magga komu meira að segja heim í dag..

Jay er mikið að hugsa um að koma til mín á klakann sem fyrst :D :D :D :D

búin að eignast marga góða nýja vini..

ég var beðin um vera með myndlistasýningu í "húsinu" á Akureyrarvöku eða menningarnótt á akureyri 25 ágúst, sem ég ætla að gera.. :D fer í bæinn á morgun að versla striga og svo bara hella mér í málninguna.. vantar samt "muse"

síðustu helgi fór ég á ættarmót og skemmti mér konunglega!! alveg hreint æðislegt! var hatta þema og ég (eins og frændi minn sagði) rokkaði feitt sem kúreki, vorum komin svo nálægt borginni að ég var ekki rórri fyrr en við renndum alla leið og ég fékk aðeins að missa mig á útsölunum.. komu 3 bolir, kjóll, jakki og skór í safnið sem verður mikið notað í sumar! VEIII!!

um næstu helgi verð ég alein heima.. er að pæla í að fá eitt auka herbergið hjá Gunna mínum og vera bara að dúllast í bænum, fara í myndatökur með Ölfu og margt fleira!! þið vitið af mér og númerið mitt ef þið viljið hitta mig, svo eru líka Sigurlaug og Ösp og kannski Dandi og Magga að kíkka út, þannig að hver veit nema maður geri það.. annars allt óráið..

annars er ég að vinna eins og brjálæðingur, og í fyrsta skipti í langan tíma er það bara fínt að því að ég og sigurlaug tölum allan tíman og hlæjum af okkur rassgatið!!! alveg æði!!

þar næstu helgi er stefnan tekin á borgarfjörð eystri - - en það er samt algjörlega óráðið.. bara hugmynd.. þar eru tónleikar með Lay Low, hjálmum, Megasi og fleirum! væri meira en til í að kíkka þangað!! usssss... taka bara alla helgina í útilegu og taka gamla sigurrósar pakkann frá því í fyrra :D

svo er Anna frænka að koma um versló.. og við ætlum að taka eitt BLEIKT kvöld!! mála bæinn algjörlega bleikann.. hahah ohh það verður svo gaman..

ég var að hugsa um það í vinnuni í dag, hvað ég á töff vini!! nefni engin nöfn en; myndlistamaður, söngVARAR, fatahönnuður, rithöfundur, kokkur, landsliðsmaður og heimshornaflakkarar með meiru.. get setið endalaust og hlustað á sögur frá stöðum sem ég hef ekki einu sinni hugsað um að heimsækja, og fylgjast með og hjálpast að við hugmyndir að öllu þessu sem þau eru að gera, og þau með það sem ég er að gera! get ekki sagt það nógu oft hvað ég er heppin að eiga svona góða vini!!! þótt þeir lesa ekki allir bloggið mitt ;) hehehe

an alla vega nóg komið í bili, pabbi gamli á afmæli í dag, og þar sem ég góða dóttirin ætla að mæta klukkan sex í fyrramálið fyrir þau er best að fara að skella sér í háttinn..

takk þið sem nenntuð að lesa ;)

Inga Rut


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.07.2007 00:05:03 / inga

nú er sumar gleðjist gumar gaman er í dag!

jæja er ekki kominn tími á blogg??

ég er svo ómótstæðilega hamingjusöm þessa dagana, þótt það virðist ekkert ganga upp hjá mér þessa daga þá er mér bara eiginlega alveg saman.. (innan vissra marka)

fyrir utan auðvitað helvítið Einar K. Guðfinnsson og co. sem að minnkuðu þorskkvótann niður í 130 þús tonn. sem er bara mesta þvæla og heimska og skömm sem íslensk pólitík og stjórnmálamenn hafa tekið sér fyrir hendur síðan við fengum sjálfstæði 1944. ef að þessir karlar mundu hugsa aðeins utan borgarmarkana og um annað en rassgatið á sjálfum sér og öðrum pólitíkusum. mundu þeir kannski sjá hversu mikil heimska þetta helvítis kvótakerfi er!

en ekkert sem bítur nóg á mig um Þessar mundir, þar sem ég á svo frábæra vini og er líka orðin svona helvíti dugleg að hitta þá - þótt bíllaus sé, og finnst mér ég eiga hrós skilið fyrir það... fór og átti bestustu bestu helgi í heimi í Grímsey með Hönnu minni um síðustu helgi! held að engin hafi verið svona glaður að sjá mig áður! hún bara virkilega hélt mér svo fast og það komu tár og alles! kökkur í hjartað bara.. áttum frábæra frábæra helgi!!!!!!

ég og Elva fórum í afmæli til Kötu minnar í dag og það var rosa stuð.. pylsu party í dýragarðinum og krakkarnir að fíla sig í botn!

fer og hitti Jóku mína loksins LOKSINS á morgun!!! ætlum að dúllast eitthvað með krakkana í bænum sem er svo troooooð fullur af fólki að það er æðislegt!!!

á miðvikudaginn ætlum ég og Elva mín að taka menninguna á þetta og skella okkur á kaffihús!  sem ég hef aldrei gert á virkum degi! hversu sorglegt er það!!??

ég og Sigurlaug og Dandi og fleiri erum að plana útilegu, ég og Hanna ferðalag á austfirðina; en áttuðum okkur á því að næsta lausa helgi er 24 ágúst! jeminn...

og þá er bara sumarið mitt búið!!!

ég er búin að hugsa mikið í vinnuni undanfarið þótt ég sé loksins búin að fá sigurlaugu í hús og við tölum allan daginn :D þá hugsar maður pínu inn á milli og ég áttaði mig á því að þetta ár 2007! er algjörlega árið mitt!! hef sjaldan skemmt mér jafn vel, kynnst svona mikið af skemmtilegu fólki, sumu upp á nýtt og sjaldan ferðast jafn mikið og þetta er bara frábærlega æðislegt ár þótt að stundum gangi ekki allt upp!!!

en núna er pabbi (sem var í beinni í fréttunum áðan ;) ) orðinn pirraður á glamrinu í mér þannig að ég hætti núna, þótt ég hafi miklu meira að segja..

tata Inga Rut

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 22:38:51 / inga

góðann daga góðann dag :D

jæja alveg kominn tími á blogg..

ég hef alveg ótrúlega mikið að segja.. búið að gerast svo ótrúlega margt undanfarið að ég bara hef ekki tölu á því öllu saman! - -

sumarið mitt er alfarið breytt frá síðasta plani, vegna mikilla breytinga..

en Grímsey er næst á dagskrá - - fæ að vera alla helgina með Hönnu minni sem er að góða hluti í eyjunni "minni" fögru.. hlakkar svo til að hitta hana  - - sakna hennar svo.. vandist of vel við að hafa hana hérna um daginn með kvöldgöngunum og endalausu spjalli.... og svo að sjálfsögðu alla í eyjunni og komast bara þangað.. allt gott í Grímsey!

annars fór ég til Elvu í dag áttum góðann dag í steikjandi hita og sól í göngugötunni og kaffihúsum bæjarins og töluðum um allt milli himins og jarðar enda löngu löngu kominn tími á það!

Sigurlaug er komin að vinna með mér, sem ég held að eigi algjörlega eftir að bjarga sumrinu mínu! búnar að plana myndatökur og útilegur og grillveislur og alles í allt sumar! gaman gaman!

Kata mín er komin á Dalvíkina þótt ég gleymi því allt of oft! og er að reyna að dobbla hana ´´i heimsókn í kvöld í einn bjór eða svo og gist og vakna svo hressar með Júnsu í fyrramálið ;) hehe

Dandi er bara alltaf í brugginu og boltanum og maður bara sér hann nánast aldrei - - hittann reyndar í dag þannig að ég get ekki kvartað ;)

Júnsa mín er annars mjööög hress, viss um að þessi snillingur eigi eftir að verða rithöfundur að því hún býr svo í sínum ævintýra heimi og segjir mér svo endalausar sögur allan daginn, og ég get stundum alveg legið úr hlátri :D

ferðum mínum til Ólafsvíkur mun nú fækka um heilann helling vegna óviðráðanlegra ástæðna sem ég ætla ekkert að vera að ræða hér..

ekkert nýtt komið´í sambandi við bílinn minn nema að hann verður ekki til fyrr en í ágúst.. :/

ég fæ út úr blóðprufunum í næstu viku.. er reyndar að gæla við það að fá þær ekkert fyrr en eftir Grímsey.. spurning..

Alfa mín er flutt heim frá Danmörku og skammarlegt en satt er ég ekkert búin að hitta hana! ekki neitt.. og sakna hennar svo!

Jay fékk sér tattoo um daginn sem ég teiknaði og hannaði handa honum..

 

en annars er bara allt rosalega fínt að frétta af mér og okkur öllum og bjart sumar framundan með öllu tilheyrandi, maður lætur sko ekkert bilaðann bíl eða neitt skemma sumarið að þvíað sumarið er tíminn!!!!

annars er ég búin að vera alveg crazy í myndatökunum lately og ætla aðeins að sýna ykkur brot af því..

annars er það komið svo fyrir mér - - að ég er hætt við að fara í skóla, tek þá ábyrgð alla á mig sjálf.. enda engum um að kenna nema mér..

finn ekkert sem mig langar til að læra.. nema ljósmyndun og hún er ekki kennd hér, þannig að mig langar að taka kvöldnámskeið í ljósmyndun bara þangað til ég er búin að ákveða mig..

annars þætti mér alveg ros vænt um að fá eins og nokkur comment.. væri rosa gaman að fá frá öllum sem kíkka hingað en kvitta aldrei, alveg ótrúlegast fólk sem maður fréttir af sem les bloggið manns en kvittar aldrei.. og svo að sjálfsögðu þið hin sem kíkkið alltaf.. skiljið eftir smá spor elskurnar..

Inga Rut xx

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Grúppur :)